Category: Húsamaur – Hypoponera Punctatissima
Meira af vísindavef
Eins og fram kemur í svari sömu höfunda við spurningunni Hafa maurar numið land á Íslandi? hafa fundist tæplega 20 tegundir maura hér á landi. Vísbendingar eru um að fjórar þeirra hafi náð hér fótfestu: húsamaur, blökkumaur, faraómaur og draugamaur…
Marco Mancini, Andreas Guðmundsson og Arnar Pálsson. „Hvaða maurar hafa náð fótfestu á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 9. júlí 2021. Sótt 13. júní 2022. http://visindavefur.is/svar.php?id=47708.
Húsamaura vinnumaur
Vinnumaurar húsamaura (Hypoponera punctatissima) lifa mjög duldu lífi og sjást því sjaldan. Þeir lifa yfirleitt bara neðanjarðar (eða inni í veggjum húsa), og finna alla næringu sem þeir þurfa þar. Það vildi svo heppilega til að við rákumst á vinnumaur (til vinstri) og drottningu (til hægri) að skiptast á upplýsingum og líklega næringu líka. Eitt mikilvægt hlutverk vinnumaura er að mata drottningarnar sínar.
Líf í Reykjardalnum
Þetta bú húsamaura (hypoponera punctatissima) lifir friðsamlega undir steini á hverasvæðinu umhverfis Hveragerði. Þar sem húsamaurar finnast nær eingöngu í húsum krefjast þessir maurar aukinna rannsókna.
Drottning húsamaura
Húsamaurar/Klóakmaurar (Hypoponera punctatissima) eru mjög sjaldgæfir utandyra og geta yfirleitt bara lifað inni í hituðum húsum á Íslandi. Vængjaðar drottningar mauranna sverma frá desember fram í júlí og dragast þá að ljósi. Vinnumaurar þeirra sjást þó sjaldan því ólíkt öðrum maurum nærast þeir eingöngu á öðrum skordýrum en ekki sykri og hafa því enga ástæðu til þess að koma inn í íbúðir manna.