Evrópskir eldmaurar á vísindavefnum

M. rubra að stinga hönd rannsakanda

Við skrifuðum í fyrra færslu um evrópska eldmaura fyrir vísindavefinn.

Marco Mancini og Arnar Pálsson. „Hafa evrópskir eldmaurar fundist á Íslandi?Vísindavefurinn, 15. mars 2023. http://visindavefur.is/svar.php?id=12687

“Úti í heimi finnast nokkrar tegundir svokallaðra eldmaura. Í Evrópu finnst tegundin Myrmica rubra og er hún stundum nefnd evrópskir eldmaurar (e. European fireants eða Common red ants). Útbreiðsla tegundarinnar er aðallega á norðlægum svæðum í Evrópu og austur eftir Asíu[1] en hún hefur dreifst víðar um jörðina með mönnum. Fyrir rúmri öld barst hún til austurstrandar Norður-Ameríku og dreifðist þaðan um meginlandið.[2] Myrmica rubra er ágeng tegund og vegna árásargirni og hversu fjölbreytta fæðu einstaklingar hennar geta nýtt er hún talin ógnun við líffræðilegan breytileika þar sem hún hefur numið land.[3][4] Evrópskir eldmaurar hafa leitt til fækkunar annarra skordýra í Bandaríkjunum[5], og vitað er að þeir hafa aukið dánartíðni mávaunga í hreiðrum.[6] Maurar af tegundinni Myrmica rubra eru með brodd sem gerir þeim kleift að særa dýr, þar á meðal menn.”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *